Endurnýjun alltaf til góðs?

Ég var að tala við mann í gær og hann nefndi við mig kröfuna um endurnýjun í röðum þingmanna. "Hún er ekki bara af því góða", sagði hann. "Líttu bara á ungu mennina í Sjálfstæðisflokknum. Þeir eru frámunalega fanatískir og þröngsýnir, með takmarkaða reynslu og þekkingu á lífi fólks í landinu." Og hann bætti við að það væri ekki það versta þó menn skorti þekkingu, verra væri að þessir drengir hefðu svo lítinn áhuga á að afla sér hennar. En þeir tilheyra  líka stjórnmálahreyfingu sem heldur að hún sé náttúruafl en ekki lifandi samtök fólks. Þess vegna segja sjálfstæðisforingjar að það sé fólk sem hefur brugðist flokknum en ekki flokkurinn sem brást landi og þjóð. Sorglegt! Sorglegt að við þurfum að sitja uppi með svona drengi og svona flokk.

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Um bloggið

Friðrik Dagur Arnarson

Höfundur

Friðrik Dagur Arnarson
Friðrik Dagur Arnarson
Maí 2024
S M Þ M F F L
      1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 30 31  

Heimsóknir

Flettingar

  • Í dag (2.5.): 2
  • Sl. sólarhring: 3
  • Sl. viku: 23
  • Frá upphafi: 266

Annað

  • Innlit í dag: 2
  • Innlit sl. viku: 23
  • Gestir í dag: 2
  • IP-tölur í dag: 2

Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband